http://geirfugl.blog.is
Rita ummæli 24. apríl 2007
Nú er loðnuvertíðin í hámarki og mokveiði hefur verið uppá síðkastið og er kvótinn langt kominn hjá okkur
sem og flestum öðrum. En ég horfði á magnaðan fótboltaleik í gær þar sem Manchester United vann Lille 1-0 í meistaradeildinni. Frakkarnir gerðu sig af algjörum fíflum í þessum leik með framkomu sinni, þeir hótuðu að ganga af leikvelli eftir að Ryan Giggs skoraði sigurmarkið úr aukaspyrnu. Þeir voru að stilla upp varnarvegnum þegar Giggs skaut boltanum og skoraði og eyddu frakkarnir ófáum mínútum í tuð og röfl við dómaran í stað þess að halda áfram leiknum. Þeir greinilega hafa ekki lært það að það þýðir ekki að röfla í dómaranum. En góður sigur hjá mínum mönnum og gott veganesti í seinni leikinn á Old Trafford.
Kveðja Stjáni
Ein ummæli 21. febrúar 2007
Ég hugsaði mig ekki lengi um þegar mér bauðst að fara á loðnu á Víking AK og taka eina grunnnótarvertíð. Víkingur AK er eitt allra besta nótaskip flotans og hefur fiskað vel í gegnum tíðina. Þegar loðnan gengur upp á grunnið sem hún fer að gera á næstu dögum er mjög gaman á loðnu, þetta er allra skemmtilegasti veiðiskapur sem maður kemst á.
Ein ummæli 5. febrúar 2007
Hvað eru menn að vandræðast með Wilson Muga, skipið sem er uppí fjöru við Hvalsnes. Það á bara að skorða skipið vel þarna í fjörunni svo það hreyfist ekki í suðvestan roki og nota það undir ýmiskonar
starfsemi. Það á bara að leggja veg að fjörunni og gera stórt bílastæði og setja upp kláf sem flytur fólk í skipið. Það er hægt að breyta svona skipi í diskótek eða svo er hægt að útbúa þarna heljarinnar spilavíti fyrir alla spilafíkla landsins. Svo gæti Geiri á Goldfinger keypt skipið og breytt því í stærstu strippbúllu landsins og kannski fengi hann að vera með veggi í stað tjalda í einkadansinum þar sem skipið er ekki á landinu heldur í íslenskri landhelgi. Geiri gæti sótt um að vera með hard core hóruhús þarna og haft Guðmund í Byrginu í vinnu. Gummi gæti verið með BDSM herbergi og sýnt mönnum hvernig á að nota Daríu og systur hennar, passað að það sé nóg olía og ekkert loft. Ólöf vinkona hans gæti verið með honum í þessu þ.e.a.s. ef þau sættast. Það væri einnig hægt að hafa þetta sem fangelsi. Það er margt hægt að gera við þetta skip, það væri sóun að rífa það.
Kveðja Stjáni
3 ummæli 24. janúar 2007
Þar sem vinnudagurinn minn er ekki mjög langur þessar vikurnar þá er fjarstýringin af sjónvarpinu oftar
en ekki í höndunum á mér á daginn, allavega þangað til stelpurnar koma heim. En ég hef ýtt stundum á rás 7 á afruglaranum þar sem sýnt er beint frá alþingi og horft á umræðuna um rúv. Það var oft gaman að hlusta á Össur og félaga í stjórnarandstöðunni tæta Sigurð Kára og Þorgerði Katrínu í sig. Og talandi um Þorgerði Katrínu, ég er sannfærður um að hún sé hann. Það hefur verið eitthvað bogið við sæðið úr Gunnari pabba hennar þegar hann lét mömmu hennar það í té níu mánuðum áður en hún fæddist. Það sér það hver sem vill sjá að það er akkúrat ekkert kvenlegt við hana, hún hlýtur að vera með fullt af karlhórmónum í sér. Hún gæti auðveldlega verið tvíburabróðir Eiríks Haukssonar stórsöngvara. Ég skora á Kára í erfðagreiningu að krúnka aðeins í Þorgerði og gá hvort hún sé hann. Gunnar skátahöfðingi pabbi hennar hlýtur að hafa verið á nautasterum á sínum yngri árum með þessum hrikalegum afleiðingum. Ætli nafni minn Arason geri sér enga grein fyrir þessu. Hann á börn með karlmanni í kvenlíkama. Þar sem maðurinn var landsliðsmaður í handbolta og er núna í toppstöðu í KB-banka þá getur ekki verið að hann sé einhver vitleysingur. Nafni hlýtur að hafa svona svakalega kynferðislegar kenndir í karlmenn, hann er greinilega með óra sem hinn venjulegi borgari skilur ekki og þar á meðal ég. Ætli nafni minn Arason fari í kaffi á sunnudögum til Önnu Kristjáns og ræði afbrigðilega óra, já og Gvendur í Byrginu líka og veiti honum andlegan styrk til að takast á við þessa afbrigðilegu óra.
Kveðja Stjáni
Rita ummæli 22. janúar 2007
Ég þakka öllum þeim sem sendu mér afmæliskveðju í dag. Svo þakka ég sérstaklega þeim sem gáfu mér afmælisgjafir. Svo ætla ég að óska sjálfum mér innilega til hamingju með daginn.
7 ummæli 20. janúar 2007
Ég rakst á þessa stórskemmtilegu mynd á netinu. Þarna var áhöfnin á Grindvíking að taka á móti verðlaunapening fyrir kappróður 1991. 
Rita ummæli 19. janúar 2007
Ég var að horfa á X-Factor áðan og þar komst færeyingurinn Jógvan áfram sem er kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir það að maðurinn heitir Jógvan og er færeyingur. Það búa að ég held 50 þúsund manns í Færeyjum og væntanlega eru helmingurinn af þeim konur sem þýðir að 25 þúsund karlmenn búa í færeyjum. Þetta er svona frekar auðvelt reikningsdæmi fyrir meðaljón eins og mig. En af þessum 25 þúsund karlmönnum heita örugglega helmingurinn af þeim Jógvan. Ég byggi þessa útreikninga mína á því að ég hef tvisvar sinnum komið til Færeyja. Í fyrra skiptið kom ég til Fuglafjarðar á
Grindvíking GK fyrir allmörgum árum til þess að landa loðnu og að sjálfsögðu klæddi maður sig upp og fór og skoðaði mannlífið í Fuglafirði. Eftir að hafa farið á veitingastað og borðað steiktan ufsa og franskar sem kokkurinn Jógvan eldaði fór ég til Rúnavíkur með strákunum á Grindvíking til þess að versla í heildverslun. Leigubílstjórinn sem skutlaði okkur þangað hét Jógvan. Þegar ég kom inn í heildversluninna sá ég stimpilklukku þar sem 12 nöfn starfsmanna voru tveir kvennmenn og tíu karlmenn og fimm af þeim hétu Jógvan. Mér fannst þetta frekar fyndið að svona margir hétu þessu nafni. Svo þegar við vorum að fara frá Fuglafirði og löndunargengið var að tía sig frá borði þá datt mér í hug að kalla hátt “hey Jógvan, hvað er klukkan” og viti menn, helmingurinn snéri sér við og sagði mér það.
Svo nokkrum árum seinna fór ég á Ólafsvöku. Maður byrjaði á því að fara á barinn í Norrænu þegar við lögðum af stað frá Seyðisfirði og hver annar en Jógvan var að afgreiða á barnum. Ég gisti á farfuglaheimili á meðan Ólafsvakan stóð yfir og auðvitað var Jógvan farfuglaheimilisstjóri. Svo eina nóttina lenti ég í rosa partíi og mig syfjaði alveg svakalega og sofnaði í sófanum og þegar ég vaknaði var búið að breiða yfir mig teppi. Þegar ég vaknaði og fór út þá var mér litið á útidyrahurðina og þar stóð á hurðinni Jógvan og Anna, ekki veit ég hvort þessi Anna var íslensk en heimilisfaðirinn hét Jógvan. Það væri gaman að vita það hver hafi breytt yfir mig teppið, ég kemst sennilega aldrei að því. Svo lendum við félagarnir í því að gamall ekkjumaður bauð okkur heim til sín. BrimklóarSvenni var með Hot and sweet flösku með sér sem gamli ekkjumaðurinn stal af honum og lét sig hverfa og skildi okkur eina eftir í húsinu sínu. Þá rak ég augun í að ég held rafmagnsreikning og þar stóð Jógvan. Daginn eftir sáum við Jógvan gamla vel við skál í miðbæ Þórshafnar kolsvartan um munnin með hot and sweet flöskuna hans BrimklóarSvenna og var hún nánast tóm. Allir þessir Jógvanar sem ég hef hitt í Færeyjum segja mér það að 12.500 færeyingar heita Jógvan og einn af þeim er í X-Factor.
Kveðja Stjáni
8 ummæli 12. janúar 2007
Ég hef oft pælt í því hvort einhver heimsfrægur hafi étið fisk sem ég hef blóðgað og gert að. Ætli David Beckham komi til með að éta einhvern af golþorskunum sem ég blóðgaði í dag? Þetta eru sannkallaðir aulaþorskar sem við erum að fá þessa dagana útaf Grindavík, sannkallaðir grindvíkingar. Þessir þorskar
verða væntanlega settir í salt og sendir síðan út til Spánar eða Portúgals. Það væri gaman ef fræga fólkið vissi hver blóðgaði þorskinn, gerði að og setti síðan í krapa. David Beckham á rétt á að vita hver gerir að fiskinum sem hann borðar. Hann á að geta komið inn á veitingahús í Madríd sest niður og pantað sér saltfiskrétt sem Kristján Ásgeirsson frá Grindavík blóðgaði og gekk frá í krapa, eða nafni minn Ronaldo þegar hann fær sér fisk í Portúgal. Ronaldo á að geta sagt við þjóninn, ég ætla að fá fisk sem Kristján Ásgeirsson frá Grindavík blóðgaði og þá myndi þjónnin örugglega kom til með að segja, já ekkert mál þetta er langbesti fiskur sem við höfum haft sem Kristján Ásgeirsson blóðgaði og gekk frá, þessi fiskur er mjög vinsæll hjá fræga fólkinu. En maður kemst sennilega aldrei að því hvort einhver frægur hafi borðað fisk sem maður hefur meðhöndlað. Það er ein leið til að komast að því fyrir mig. Ég er að fara til Spánar á næstunni og ég ætla að prufa að panta mér saltfisk og spyrja þjóninn hvort ég geti fengið fisk sem Kristján Ásgeirsson hafi blóðgað, það er ekki víst hvort ég þekkist í sjón en nafnið gæti þekkst.
Kveðja Stjáni
9 ummæli 16. desember 2006
Árið 2006 er senn á enda og er ekki úr vegi að rifja aðeins upp hvað gerðist hjá manni á því herrans ári. Ég upplifði eitt mesta rugl til sjós þegar ég byrjaði á Þórkötlu GK 9. Báturinn kom ílla frá genginn og ég eyddi mest öllum brælum um borð í að lagfæra þessa hrákasmíði. En við veiddum vel á vertíðinni enda rérum við mikið og maður kom oft rétt heim til að borða og fara svo að sofa, maður sá stundum ekki stelpurnar svo dögum skipti þar sem þær voru sofnaðar þegar ég kom og ekki vaknaðar þegar ég fór, enda vorum við með fáránlegt magn af línu svo vart dugði sólarhringurinn til að afgreiða þetta. En um páskana fórum við Gummi bróðir til einnar skemmtilegustu borgar sem ég hef komið til, þar sem mekka fótboltans er sjálfrar Manchester. Við vorum fjóra daga í Manchester og fórum á Old Trafford að sjá
leik Manchester United-Sunderland. Þessum leik lyktaði með markalausu jafntefli. En dvöl okkar í Manchester var afar skemmtileg og margt var hægt að gera sér til skemmtunar í borginni. Við fórum í skoðunarferð um Old Trafford þar sem ég þurfti að yfirgefa skoðunarferðina þegar hún var hálfnuð vegna miðakaupa á Tottenham-Manchester United á White Hard Lane sem við ætluðum að sjá á leiðinni heim. Something came up og ég fór og náði í miðana. Við enduðum svo þessa ferð í London þar sem við hittum hóp valinkunnra grindvíkinga og fórum með þeim á White Hard Lane og sáum Manchester United vinna Tottenham 2-1 og toppaði það þessa mögnuðu ferð. Svo var ég á Siglufirði mest allt sumarið á Þórkötlu GK 9 og var þetta heimskulegasta sumar sem ég hef upplifað, við fengum rúmlega sólarhrings frí á hálfsmánaðar fresti. Þetta var svo mikið rugl að ég lét ekki bjóða mér þetta lengur og hætti þar enda ekki hægt að láta bjóða sér svona vitleysu. Ég réði mig á Hrólf AK sem þúsundþjalasmiðurinn, pallaarkitektin, útgerðarmaðurinn, múrarinn og netajaxlinn Sigurður Daníel Halldórsson á. Það fer ekki mikið fyrir ruglinu hjá Sigga og skyndilega fór maður að sjá dætur sínar í marga klukkutíma á dag og maður eignaðist líf aftur. Siggi hannaði og smíðaði pall fyrir mig í vor og er þetta þvílík listasmíði, sannkallaður sælureitur á góðviðrisdögum. Ég fór svo til Tyrklands í haust með Ásu og fjöldan allan af skemmtilegum grindvíkingum, þessi ferð verður lengi í minnum höfð vegna rigninga og þrumuveðurs. Þessi ferð breyttist í verslunarferð í stað sólarlandaferðar. Hef ég svo verið á netum á Hrólfi AK í haust og líkað vel enda þægilegt í alla staði. Svo kem ég til með að enda árið á sólareyjunni Tenerife með fjölskyldunni. Það verður fínt, nóg af fóboltaleikjum sem maður horfir á með breskum fótboltabullum á breskum knæpum.
Lifið heil.
Kveðja Stjáni
2 ummæli 12. desember 2006